Icelandic

Velkomin á vefsíðuna okkar.

Fyrsti papillon hundurinn sem við eignuðumst “Lus van Picolora” var gjöf til dóttur okkar. Stuttu seinna ákváðum við að fá okkur annan og þá varð fyrir valinu “Ondine van den Herhout”. Eftir samtal við ræktanda Odine við ákváðum að fara á okkar fyrstu hundasýningu og án þess að gera okkur grein fyrir því strax þá höfum við verið háð þeim síðan. Fyrstu árin tókum við þátt í mörgum sýningum en án mikils árangurs. Eftir að hafa kynnst sýningum og fólki í kringum þær, þá fluttum við inn "Dimba van Jocohama". Þessi litla tík varð besti ungliði sýningar á fyrstu sýningunni sinni. Hún lauk ferli sýnum sem Belgískur, Luxemburg, Þýskur og Alþjóðlegur Meistari. Eftir því sem tíminn leið tókum við enn meiri þátt í hundasýningum með belgísku hundategundinni okkar.
Til að svala forvitni okkar höfðum við samband við tegundasérfræðinga og fræga ræktendur til að læra allt sem við gátum um papillon. Við settum okkur í samband við Normu Staff eiganda  Ringlands kennel og fengum ”Ringland Fable”. Hann var afar fallegur en frekar feiminn í sýningahringnum og vann þess vegna ekki mikið. Það besta við hann var þó að hvolparnir sem komu undan honum voru mjög fallegir og með góða milda skapgerð.
Þegar Katheleen dóttir okkar var 13 ára ákvað hún að taka þátt í keppninni um unga sýnendur. Árið 1996 var henni svo boðið að taka þátt í Team Match Junior Handling í Salisbury í Bretlandi. Ég fór með í þessa ferð og Katheleen sýndi Dalcia Home Alone at Merchiston “Thomas” sem Norma Staff átti. Frá því að ég sá hann fyrst vissi ég að ég þurfti að eignast svona papillon. Eftir þessa helgi hringdi ég í Normu Staff og spurði hvort hún vildi selja Thomas. Í byrjun vildi hún það ekki en eftir fleiri símtöl við hana komumst við að samkomulagi og Thomas fékk að koma til Belgíu. Á fyrstu sýningu sinni sem var í Brussel vann hann CAC, CACIB og BOB og varð 5. í tegundahóp og í heiðurshringnum þar sem Belgískar tegundir kepptu, vann hann fyrsta sætið í Besti Belgíska Tegund sýningar. Til að fullkomna daginn vann hann líka “Silver Challenge Verbank Bikarinn”.
Á tveimur árum var hann orðinn Margfaldur Meistari (MultiCH), við erum enn þakklát Normu Staff fyrir að hafa látið okkur hafa þennan hund. Hann hefur feðrað marga fallega hvolpa eins og t.d CH Xanadou de Costalina, Xtrerme de Costalina, MultiCH og BOG Avanti de Costalina, MultiCH og BOG Aqua di Gio de Costalina.
Árið 1998 fórum við á Crufts og vorum mjög áhugasöm að sjá hundana keppa og hvernig úrslitin yrðu. Á sýningunni kynntumst við Banfield hjónunum sem eiga Kingshaven kennel. Þau eiga afar fallega tík, UKCH Kingshaven Miss Molly “Molly”. Eftir að hafa skoðað ættartölur við sáum að hún var hálfsystir Thomas okkar. Af þessum ástæðum ákváðum við að kaupa gotsystkinin Kingshaven Quicksilver og Kingshaven Nuarra sem höfðu líka sama föður sem var Ringlands Rupert.
Kingshaven Quicksilver de Costalina vann titilinn Heims Meistari (World Winner) í Porto Portugal árið 2001, Evrópu Meistari, Alþjóðlegur Meistari ásamt því að vera Belgískur, Franskur og Luxemburg Meistari. Systir hans Nuarra hefur sannað sig með því að vera afburða ræktunartík og hefur gefið af sér marga Meistara.
Árið 2001 var Clepnaco klúbburinn (Club Belge de l’Epagneul Nain Continental) endurstofnaður. Á stofnfundi klúbbsins var ég valinn formaður.
Núna um 20 árum síðar, hefur fólk  hvaðanæva að samband við okkur til að fá svör við spurningum sínum um tegundina.
Við eigum þó nokkra Heims Meistara, Evrópu Meistara, Alþjóðlega Meistara ásamt Þjóðar Meisturum frá mörgum löndum í heiminum. Það sem stendur uppúr ferli okkar er að hafa fengið BOB á Crufts tvö ár í röð, árið 2006 og 2007 og fengið BIS í Monaco árið 2007 og Belgíski titillinn “Master Of The Year 2008”

 

Jan & Gerda

Leave your name and E-mail and stay up to date with our newsletter

*  Name:
*  Surname:
*  Your email address:
 

 

Roosens Jan :: Berghaagstraat 39/1 :: B-1700 Dilbeek
Phone/Fax: 0032(0)2 306 40 91- Mobile 0032(0)494 83 56 99
de.costalina@telenet.be
:: Copyright © The Costalina Papillons :: Designed by Carenzi.be :: ::